Nauðsynlegar óþarfaupplýsingar útskrifaðra iðjuþjálfa
Myndirnar okkar
Afmælisdagarnir okkar

Dagný - 30.jan
Hildur Æ - 7.feb
Stína - 7.mar
Sólrún - 15.mars
Daðey - 17.mars
Fanney - 24.apr
Oddný - 8.júní
Gulla - 1.júlí
Sólveig - 3.júlí
Tinna -10.júlí
Hildur A -22.júlí
Magna - 23.ágú
Marzenna -24.nóv
Steinunn - 20.des

11.10.2010 12:46:05 / Gulla

Ferðin 2010!!!

Jæja jæja jæja!!!

Stúlkur nú eru bara nokkrir dagar til stefnu og eykst spenningurinn með degi hverjum :)
Við Hildur hringdum í allar á þriðjudaginn seinasta og er blússandi þátttaka sem er alveg frábært!
Undirritaðar ætlum að taka það að okkur að versla í sameiginlega máltíð fyrir laugardagskvöldið og kaupa smá snakk og nammi. En fyrir hina matsmálstíma kemur hver og einn með sitt auk þess söngvökva sem hver ætlar að innbyrgða ;)

Orlofshúsið í er staðsett í Furulundi 8 í byggðakjarnanum í Varmahlíð. Húsið er glæsilegt á tveimur hæðum, stendur hátt og er útsýni  yfir fjörðinn stórkostlegt. Húsið rúmar 14 manns í rúm og er vel búið öllum almennum áhöldum til borðhalds og eldunar.  Ísskápur og eldavél í "fullri stærð", uppþvottavél og þvottavél eru í húsinu. Nári upplýsingar og myndir er hægt að nálgast hérna: http://www.orlof.is/rafis/site/cottage/cottage_details.php?cottage_id=52

Allir þurfa að taka með sér sængurver, sundföt og þeir sem eiga spil eða luma á skemmtiatriðum mega endilega deila þeim! Síðan var spurning hvort einhver gæti komið með playstation og singstar eða guitarhero!

Ritarar mæla einnig með því að þær sem ætla að koma á laugardeginum komi eins snemma og þær geta, því fyrr því betra :)

Hlökkum til að sjá ykkur
Gulla & Hildur




» 13 hafa sagt sína skoðun

17.09.2010 22:36:03 / hildur æ

Sumarbústaðarferðinokkar!!!!

Jæja stelpur, tæpur mánuður í þetta og við ekkert farnar að plana - hvað er að okkur????

Jú ég veit að Gulla og Oddný eru með fullt í kollinum og hér með óska ég eftir að þær komi með hugmyndir að nefndum og svona:) Við Gulla erum líklegast komnar með smá skemmtiatriði og eigum við ekki að dobbla hana til að taka sing star og Buzz með??

Komiði með fleiri hugmyndir:)

» 18 hafa sagt sína skoðun

01.07.2010 16:31:38 / Gulla

LOKSINS LOKSINS HITTINGUR!!

sælar stúlkur og gleðilegt sumar :)

Hún Magna er að koma í höfuðborgina og hafði það frábæra frumkvæði að því að hóa í hitting.
Flestar geta hist í næstu viku á fimmtudagskvöldið.

Þá vantar bara einhvern til að bjóða öllum heim til sín, hver er til?

kv. Gulla :)


» 16 hafa sagt sína skoðun

01.03.2010 17:01:15 / Gulla

Iðjuhittingur

Ákvað að setja inn póstinn sem Fanney sendi okkur....mun auðveldara að kommenta hérna!

Sælar allar nær og fjær ;)
 
Einhver var að tala um að það væri komin tími á hitting.
Þar sem ég var að flytja í nýja íbúð þá er alveg tilvalið að bjóða ykkur í heimsókn :)
Fimmtudagurinn 4. mars varð fyrir valinu. Það væri gaman ef einhver sem býr á "úti á landi" ;) ætti leið í bæinn þá.
Hvað segiði stelpur um þetta???
 
Kv. Fanney

» 22 hafa sagt sína skoðun

10.11.2009 22:12:07 / idjur

Norðanhittingur???

Sælar skvísur!

Ég og strákarnir mínir ætlum að skreppa norður næstu helgi (13.nóv-16.nóv)og mér datt í hug að athuga hvort það væri einhver áhugi fyrir hittingi??? What you say?
Við komum á föstudaginn og heim aftur á mánudag.

Kveðja, Tinna :)



» 4 hafa sagt sína skoðun

06.11.2009 12:51:40 / oddný

Hamingjuóskir og hittingur

Sælar dömur!

Fer ekki að verða kominn tími á hitting? Ég frétti að Magna yrði í bænum í næstu viku og datt í hug hvort það væri stemming að hittast, t.d. á mánudagskvöldið? Sólveig heldur að hún geti boðið heim til sín. Hvað segiði, er stemming?

Og svo laumaði hún Fésbók því að mér að það væru fæddar tvær nýjar iðjuprinsessur! Og mig langaði bara að nýta tækifærið og bjóða þær velkomnar í heiminn og óska foreldrunum innilega til hamingju!!

Kv. Oddný

» 13 hafa sagt sína skoðun

08.10.2009 13:42:07 / idjur

Takk fyrir okkur :)

Sælar elskurnar!
Ég vildi bara blogga hérna smá því að ég var að fá í hendurnar gjöfina frá ykkur, takk innilega fyrir! :) Ég er meira að segja búin að ákveða í hvað ég ætla að nota þetta, ég keypti nefnilega tripp-trapp stól um daginn og átti eftir að fá í hann sessu, þannig að hún verður frá ykkur og svo bland í poka fyrir afganginn, he he :lol: Kannski ekki alveg, en það verður eitthvað annað sem okkur vantar... :d
Takk kærlega, knús og kossar á ykkur allar -og ég hlakka mikið til að hitta ykkur næst! :)

Kveðja, Tinna og Smári Týr


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.09.2009 17:12:49 / Gulla

Hittingur - taka tvö

Jæja stelpur það gekk ekki nógu vel að hittast seinast þar sem Hildur og Fanney voru lasnar og kom uppástunda um að hittast á mánudaginn næstkomandi.
Hvað segið þið um það? Erum við ekki orðnar spenntar að sjá myndirnar hjá Oddný og fá okkur e-ð gott í gogginn :)

» 9 hafa sagt sína skoðun

02.09.2009 22:26:39 / oddný

HITTINGUR

Hæ allar!
Bara svo það sé á hreinu, þá er hittingur hjá mér næsta mánudag, 7. sept kl 20.30! Ég sé um drykki og baka jafnvel eina köku ;)

Sjáumst hressar, Oddný

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.08.2009 20:41:59 / oddný

Nýr iðjuprins fæddur....


... það eru nú sennilega allir búnir að frétta af nýjasta prinsinum en mig langaði samt að pósta færslu, svona svo þeir sem eru ekki með fésbók geti líka fylgst með ;)

En þau Tinna og Siggi eignuðust gullfallegan prins þann 30. júlí (held ég örugglega!). Tinna fræðir okkur kannski frekar um stærð og þess háttar! Ég hef séð myndir af honum á feisbókinni og hann er svo flottur og sætur! Innilega til hamingju litla fjölskylda og njótið tímans, hann líður fljótt!

Svo bendi ég öllum á að skoða færsluna hér að neðan! HITTAST HITTAST.

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.08.2009 12:37:06 / hildur æ

Hhhhhhiiitttingur!! Bæði Rvk og Akó!!

Jæja, þá erum við slf píur (ég, Gulla og Fanney) orðnar sykurþurfi og langar að hitta ykkur og borða gúmmelaði8| Einnig langar okkur að sjá myndashowið hennar Oddnýjar frá bryllupinu, Oddný þú sleppur þá við að koma með köku;)Er einhver sem býður sig fram í að halda þetta hérna á suðurlandinu??

Svo má ekki skilja norðurlandið eftir en við Gulla (ásamt 3 öðrum) ætlum að skella okkur á Akureyri í húsmæðraorlof (hljómar betur en fyllerísferð) helgina 11.-13. sept og ef ykkur langar að hitta okkur þá segjum við ekki nei við norðlenskum kræsingum:p En þessar kræsingar meiga alveg tóna vel við hvítvín......nei djók!! Reynum að vera edrú um kaffileytið!!

Hver er með?? 

» 17 hafa sagt sína skoðun

30.07.2009 16:29:13 / oddný

Hamingjuóskir


Mig langaði bara að óska henni Steinunni innilega til hamingju með nýja titilinn og Kalli fær að sjálfsögðu hamingjuóskir líka!
Ég var svo heppin að fá að vera viðstödd þegar þau hjón voru gefin saman og það var alveg yyyyndislegt og mikið stuð í veislunni eins og venja er þegar Steinunn er á svæðinu!!

Þúsund þakkir fyrir okkur.

Knús.

P.S Hildur; myndashowið fer að verða tilbúið!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.07.2009 15:28:43 / idjur

Nýjasti iðjuprinsinn!

Það er nú orðið lítið að gerast á þessari fínu síðu okkar, en ég ætla að henda inn smá frétt ef einhverjar voru ekki búnar að frétta... ;)

Daðey og Valdi eignuðust lítinn, sætan kút þann 30.júní, eftir langt og strangt púl var hann tekinn með keisara og litlu fjölskyldunni heilsast vel eftir því sem ég best veit! :) Innilega til hamingju kæra fjölskylda! :d

Já og svo voru auðvitað afmæli:
  • Gulla átti afmæli 1.júlí, til hamingju! :d
  • Sólveig átti afmæli 3.júlí, til hamingju! :d
  • Lilja Möller átti líka afmæli 3.júlí, hún varð fertug skvísan, til hamingju! :d
Svo bara bið ég að heilsa ykkur öllum -það er alltof langt síðan ég hef hitt ykkur elskurnar, missjú!


Kveðja, Tinna.



» 6 hafa sagt sína skoðun

21.06.2009 14:40:51 / hildur æ

Bryllup!!

Innilega til hamingju með daginn í gær elsku Oddný og Gústi!!! Hlakka til myndakvöldsins;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.04.2009 22:09:36 / hildur æ

Speltbrauð - uppskrift

Sælar allar!!

Ákvað að skella þessu hingað inn og er þetta því mitt framlag í kreppu- og hollustubankann:d  Ég var semsagt með þessa uppskrift í síðasta hitting okkar sunnanstelpna sem var hjá Fanneyju í síðustu viku, ossa hollt og gott8)

Speltbrauð

300 gr. spelt (gróft eða fínt, eða 50/50)
50 gr. haframjöl
50 gr. e-ð korn/fræ (kúmen, sólblóma, sesam, graskers)
ég var með sesam og graskers
1 tsk salt
1/2 msk vínsteinslyftiduft (frá Sollu, fæst í Bónus)
150 ml AB-mjólk
100 ml soðið vatn (kalt eða volgt)

Blanda saman þurrefnunum og svo vökvanum
Setja má meiri vökva ef deigið er þurrt eða meira spelt ef það er of blautt
Útbúið brauðhleif eða bollur og bakið við 200°í ca 50-60 (styttra ef það er blástursofn)

Ég geri þessa uppskrift yfirleitt tvöfalda eða 1,5-falda8|

Þið megið endilega skella inn einhverjum fleiri góðum uppskriftum hingað inn - sérstaklega ef þær eru svona einfaldar því ég er öll í því:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Dagsetning
23. febrúar 2012